Stefnuskrá Framsóknar í Múlaþingi
Notifications

Stefnuskrá Framsóknar í Múlaþingi
Framsókn leggur áherslu á ábyrg fjármál, öfluga þjónustu og áframhaldandi uppbyggingu í öllu sveitarfélaginu. Markmið okkar er að bæta lífsgæði íbúa, styrkja innviði og skapa jafnvægi milli þéttbýlis og dreifbýlis.
Fjármál og rekstur
Framsókn mun vinna að lækkun fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði úr 0,45% í 0,40% á kjörtímabilinu í áföngum. Á sama tíma verður ráðist í greiningu á rekstri sveitarfélagsins með það að markmiði að auka hagkvæmni og bæta nýtingu fjármuna. Innleidd verða kerfi sem veita skýrari innsýn í rekstur og styðja við gagnsæi í stjórnsýslu.
Skipulag, húsnæði og uppbygging
Unnið verður markvisst að skipulagsmálum um allt sveitarfélagið. Deiliskipulag á suðursvæði Egilsstaða verður klárað, lokið verður við breytingar á miðbæjarskipulagi Egilsstaða og lóðum úthlutað. Þá verður unnið deiliskipulag fyrir miðbæ Djúpavogs og skoðaðir möguleikar á skipulagi íbúðasvæðis í Fellabæ.
Tryggt verður að ávallt séu til staðar fjölbreyttar lóðir fyrir íbúðar-, atvinnu- og þjónustustarfsemi í öllum byggðarkjörnum. Endurskoðað verði skipulag athafna- og iðnaðarsvæða við Miðás og Brúnás á Egilsstöðum, auk þess sem möguleg landkaup til stækkunar verða skoðuð.
Í húsnæðismálum verður áfram unnið að sölu félagslegs húsnæðis ásamt áframhaldandi samstarfi við Bríet og Brák um uppbyggingu um allt sveitarfélag. Þá verður Whatnehúsið á Seyðisfirði sett í sölu. Gott samtal og samráð fer fram við að leysa húsnæðismál sveitarfélagsins og fleiri þjónustuaðila á Djúpavogi, svokallaður húsakapall.
Farið verður í endurbætur á leikskólanum á Tjarnarlandi á Egilsstöðum og síðan bætt við fjórðu deild skólans. Á sama tíma verður beðið með uppbyggingu leikskóla á suðursvæði. Kláraðar verða viðbyggingar við leikskólann Bjarkatún á Djúpavogi, lokið verður við byggingu nýs Seyðisfjarðarskóla og kláruð viðbygging við Safnahúsið á Egilsstöðum. Ráðist verður í endurbætur á skrifstofum sveitarfélagsins að Lyngási á Egilsstöðum.
Flýtt verður uppbyggingu íþróttamannvirkja á Egilsstöðum og farið í samstarf við Neista um nýja búningsaðstöðu á Djúpavogsvelli.
Innviðir og samgöngur
Framsókn leggur áherslu á áframhaldandi uppbyggingu innviða. Farið verður í lengingu Strandabakka á Seyðisfirði, breytingu á smábátahöfn og uppbyggingu hafnaraðstöðu á Djúpavogi.
Haldið verður áfram markvissri uppbyggingu göngustíga og gangstétta og bætt aðgengi fyrir gangandi og hjólandi um allt sveitarfélagið. Sett verður fram forgangsröðun í aðgengismálum til að halda áfram að vinna að áskorunum í aðgengismálum.
Mikilvægt er að HEF veitur haldi áfram jarðhitaleit á Djúpavogi, Seyðisfirði og Borgarfirði eystri.
Íþróttir og tómstundir
Framsókn vill efla íþrótta- og tómstundastarf og mikilvægt er að íþróttir sé sameinandi vettvangur fyrir öll börn, óháð uppruna.
Frístundastyrkur verður hækkaður um 10.000 krónur á kjörtímabilinu í tveimur áföngum. Áfram verður unnið að verkefninu „Allir með“ í samstarfi við íþróttafélög og sérstakur stuðningur veittur börnum sem búa langt frá skipulögðu starfi.
Staða framkvæmdastjóra Hattar og Neista verður fest í sessi og samningar um íþróttamál endurskoðaðir með það að markmiði að fjármagn nýtist sem best. Skoðaðar verða nýjar leiðir til að efla íþróttastarf á Seyðisfirði, meðal annars með skipulögðum akstri fyrir börn.
Menntun og velferð barna
Framsókn leggur áherslu á öflugt skólastarf og fjölskylduvænt samfélag. Börnum verður áfram tryggt leikskólapláss frá 12 mánaða aldri og unnið að lausnum sem mæta bæði þörfum barna og starfsfólks. Skoðaður verður möguleiki á tilraunaverkefni til að mæta þörfum vaktavinnufólks.
Skóladagatöl verða samræmd innan sveitarfélagsins og horft til samræmingar milli leik- og grunnskóla og mögulega við Menntaskólann á Egilsstöðum. Þá verður unnið að samþættingu skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs til að auka aðgengi barna, sérstaklega úr dreifbýli.
Framsókn styður áfram skólaval nemenda og leggur áherslu á að halda í sérstöðu skóla, gæða kennslu og námsumhverfi sem veitir nemendum öryggi og vellíðan því þannig skapast aðstæður þar sem börnin okkar ná markmiðum sínum, hvert á sínum forsendum. Endurskoða þarf skilgreiningu á skólahverfum.
Eldra fólk
Framsókn leggur áherslu á að styrkja þjónustu við eldra fólk, haldið verði áfram með verkefnið “gott að eldast og fest verður í sessi starf ráðgjafa í málefnum eldra fólks. Greitt verði fyrir fundarsetu í öldungaráði.
Atvinna og samfélag
Fjölbreytt atvinnutækifæri eru lykilatriði í blómlegu samfélagi. Framsókn mun beita sér fyrir því að opinber störf haldist í sveitarfélaginu og að þjónusta ríkisins sé sem næst íbúum. Unnið verður að því að kynna Múlaþing sem spennandi kost fyrir nýsköpun og uppbyggingu fyrirtækja.
Framsókn leggur áherslu á að sett verði á fót innflytjendaráð til að efla þátttöku innflytjenda í samfélaginu, bæta samskipti milli íbúa og sveitarfélags og stuðla að jafnræði og betri þjónustu fyrir alla.
Menning
Á komandi kjörtímabili verður lögð áhersla á að styðja Minjasafn Austurlands og Bókasafn Héraðsbúa við að koma sér fyrir í nýjum rýmum í Safnahúsinu. Jafnframt þarf að finna Ríkharðssafni varanlegt húsnæði og tryggja áframhaldandi stuðning við starfsemi Tækniminjasafns Austurlands. Aðstaða í Sláturhúsinu verður bætt og áfram unnið að því að bókasöfnin gegni mikilvægu hlutverki sem lifandi samfélagsmiðjur.
Hagsmunagæsla og samvinna við ríkið
Framsókn mun áfram sinna öflugri hagsmunagæslu fyrir Múlaþing. Lögð verður áhersla á að Fjarðarheiðagöng fari í útboð og framkvæmdir við Öxi hefjist sem fyrst.
Þrýst verður á afnám undanþágu fasteignaskatta af orkumannvirkjum, afgreiðslu frumvarps um lagareldi og áframhaldandi stuðning við Loftbrúna. Þá verður staðið vörð um að jöfnun atkvæða bitni ekki á landsbyggðinni. Þá verður þrýst á aukna geðheilbrigðisþjónustu með það að markmiði að styrkja mönnun og skapa raunverulega hvata til að laða að fagstéttir.
Jafnframt verður þrýst á aukið fjármagn til Vegagerðarinnar til að sinna viðhaldi vega, heimreiða og snjómokstri.


