Sterkur bær, björt framtíð
Branches

Hafnarfjörður er bær með einstakan bæjarbrag sem mótast hefur í gegnum aldirnar. Hér ríkir nánd við náttúruna, hraunið og sjóinn sem gefur bænum sérstakan svip og skapar umgjörð sem margir tengja svo vel við. Það er gott að vera og búa í Hafnarfirði, þar sem samfélagið er samheldið og fjölbreytt mannlíf blómstrar.
Á undanförnum árum hefur samfélagið staðið frammi fyrir margvíslegum áskorunum, líkt og víða annars staðar. Bæjarstjórn hefur lagt sig fram um að mæta þeim af ábyrgð og metnaði með það að leiðarljósi að styðja við íbúa og efla þjónustu. Það hefur tekist vel á mörgum sviðum. Við höfum lagt aukna áherslu á velferðarmál, menningu og íþróttir auk þess sem unnið hefur verið markvisst að því að styrkja innviði bæjarins og byggja upp ný hverfi.
Menningarlíf Hafnarfjarðar er lifandi og öflugt. Hér er rík hefð fyrir listsköpun og viðburðahaldi sem skilar sér í einstöku bæjarlífi. Fjöldi veitingastaða, hátíða og fjölbreyttra viðburða laðar að sér bæði íbúa og gesti og skapar líf árið um kring. Við þurfum að halda áfram á sömu braut og efla menninguna enn frekar, t.a.m. með uppbyggingu menningarhúss. Þá standa íþróttafélög bæjarins sig afburðavel og gegna mikilvægu hlutverki í uppeldi og samveru barna og fullorðinna. Hafnarfjörður er svo sannarlega lýðheilsu- og íþróttabær.
Þrátt fyrir allt það góða sem hér er að finna er mikilvægt að horfast í augu við að ekki er allt fullkomið. Fram undan eru verkefni sem krefjast áframhaldandi vinnu og samstöðu. Efla þarf þjónustu við eldra fólk sem á skilið öruggt og gott líf á efri árum. Jafnframt er nauðsynlegt að tryggja áfram uppbyggingu íbúða fyrir alla hópa samfélagsins svo allir geti fundið sér heimili við hæfi. Þá verðum við að leggja sérstaka áherslu á að létta róðurinn hjá þeim sem þyngstar byrðar bera og tryggja að enginn verði eftir án úrræða.
Framtíð Hafnarfjarðar er björt ef við höldum áfram á sömu braut, með skýra sýn og vilja til að gera gott enn betra. Það er verkefni okkar allra að hlúa að sterkum einkennum bæjarins og byggja áfram upp samfélag þar sem öllum líður vel.
Þá vakt mun Framsókn standa, með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi og framtíð Hafnarfjarðar í forgrunni.
Þetta snýst um Hafnarfjörð.
Valdimar Víðisson
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 24. apríl 2026



