„Tækifæri til að færa Íslendingum smá jólaglaðning með lækkun á eldsneyti“

News

Þorsteinn Sæmundsson, alþingismaður, vakti athygli á því á Alþingi í dag að markaðslögmálin eigi mögulega ekki við um „eldsneyti“ á Íslandi og þrátt fyrir að það séu fimm dreifingaraðilar á eldsneytinu.

„Ef við keyrum hér horna á milli í Reykjavík eða horna á milli á landinu getum við átt von á því að fá mismunandi verð, allt frá 10 aurum til 30 aura á lítrann.“

Og Þorsteinn bætti við, „þannig er sú samkeppni“.

Þorsteinn upplýsti að bjatari tíma sé reyndar von þar sem íslenska karlalandsliðið í handbolta verður á heimsmeistaramótinu „og hafi þeim hingað til gengið vel höfum við venjulega fengið dálítið skarpa lækkun daginn eftir,“ sagði Þorsteinn.

„Síðan í janúar í fyrra hefur heimsmarkaðsverð á dísilolíu og bensíni lækkað um 33%. Á sama tíma hefur veruleg styrking orðið á gengi íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum og maður skyldi ætla að nú gæti maður farið hlakkandi á næstu dælustöð. En verðlækkun á eldsneyti á Íslandi á þessum sama tíma nemur í kringum 10,7%,“ sagði Þorsteinn.

Samkvæmt útreikningum FÍB eru íslensku olíufélögin með um það bil 6 kr. meiri álagningu á lítra en þau voru með í janúar í fyrra. „Hver króna í eldsneytisverði á Íslandi kostar íslenskar fjölskyldur 360 millj. kr., þannig að þessar 6 kr. sem hægt væri að skila í eldsneytisverði kosta íslensk heimili í kringum 2 milljarða kr. á ári,“ sagði Þorsteinn.

„Ég held því að nú sé tækifæri á aðventunni fyrir stjórnendur olíufélaganna, sem sitja á ofurlaunum í boði lífeyrissjóðanna á Íslandi, að færa Íslendingum smá jólaglaðning með lækkun á eldsneyti,“ sagði Þorsteinn að lokum.

 

PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress