Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
News

Allir sem ekki komast á kjörstað þann 16. maí nk. geta kosið utankjörfundar.
Þegar einstaklingur kýs utankjörfundar í umdæmi þar sem hann á ekki lögheimili ber hann sjálfur ábyrgð á að koma atkvæðinu til skila. Sama á við þegar kjósandi kýs erlendis.
Hægt er að koma með atkvæði á skrifstofu Framsóknar í Bæjarlind 14-16 Kópavogi eða senda tölvupóst framsokn@framsokn.is og við aðstoðum við að koma atkvæðinu á réttan stað.
Hægt er að kjósa hjá sýslumönnum um land allt. Á vefsíðu sýslumanna má sjá hvar og hvenær hægt er að kjósa. Á höfuðborgarsvæðinu fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla fram í Hlíðasmári 1, Kópavogi, jarðhæð, gengið inn á bakvið hús
Opnunartími í Hlíðarsmára er:
17. apríl – 10. maí, kl. 10:00-18:00.
11. maí - 15. maí, kl 10:00-21:00
Það verður opið á laugardögum og sunnudögum.
Á kjördag laugardaginn 16. maí verður opið frá kl. 10:00-17:00 fyrir kjósendur sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins.
Kjörstaðir erlendis:
Þau sem eru erlendis geta kosið á skrifstofu sendiráðs, í sendiræðisskrifstofu eða í skrifstofu kjörræðismanns. Kjósendur þurfa að kanna á vef utanríkisráðuneytisins hvort auglýstur hafi verið tími sem utankjörfundarkosning fer fram í viðkomandi sendiráði eða hjá ræðismanni. Sýna þarf skilríki, til dæmis ökuskírteini eða vegabréf, þegar kosið er. Á vef utanríkisráðuneytisins eru að finna frekari upplýsingar.
Kjörstaðir á stofnunum:
Hægt er að kjósa á sjúkrahúsum, dvalarheimilum aldraðra, stofnunum fyrir fatlað fólk og í fangelsum. Tilkynnt verður um slíka kosningu á hverju heimili, sjúkrahúsi eða stofnun fyrir sig.
Kjósandi, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann geti kosið á sjúkrahúsi, dvalarheimili, fangelsi eða á stofnun. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans og bera fram við sýslumann eigi síðar en kl. 10. tveimur dögum fyrir kjördag.
Allar frekari upplýsingar má finna á:
https://island.is/v/sveitarstjornarkosningar-2026/utankjoerfundaratkvaedagreidsla26
Ef þið hafið einhverjar frekari spurningar er hægt að senda tölvupóst á framsokn@framsokn.is


