Vanhugsað að samþykkja kosningar í haust

News

„Hæstv. forseti. Um þessar mundir birtast margar jákvæðar fréttir af lífskjörum þjóðarinnar. Engum dylst að horfur í efnahagslífinu á Íslandi eru bjartar um þessar mundir og gangi spá hagdeildar ASÍ eftir verður samfelldur hagvöxtur hér á landi næstu átta ár. Vöxturinn hvílir á styrkum stoðum í hagkerfinu og við sjáum birtingarmynd þess í því að kaupmáttur launa hefur aukist verulega á síðustu missirum.

Laun hafa hækkað mikið um leið og verðbólga hefur haldist lág. Almenningur finnur áhrifin í auknum ráðstöfunartekjum samfara lækkandi skuldum en skuldir heimilanna hafa lækkað mikið á síðustu árum og vanskilum fækkað verulega. Veðsetningarhlutfall heimilanna hefur einnig lækkað mikið. Augljóst er að skuldalækkunaraðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa tekist mjög vel og styrkt stöðu heimilanna í landinu eins og að var stefnt. Staða ríkissjóðs hefur stórbatnað vegna vel heppnaðrar áætlunar um losun hafta og stöðugleikaframlög og erlend staða þjóðarbúsins er sú besta í a.m.k. hálfa öld.

Það sem af er kjörtímabilinu hefur 40 milljörðum kr. verið varið til heilbrigðismála. Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að framlög til heilbrigðismála verði aukin verulega á næstu árum þannig að þau verði orðin ríflega 30 milljörðum kr. hærri árið 2021. Mikil vinna hefur verið lögð í að skapa nýtt húsnæðiskerfi og jafna stöðu leigjenda og húseigenda en ég geri ráð fyrir að Alþingi samþykki þrjú að fjórum frumvörpum húsnæðismálaráðherra á næstu dögum, þ.e. húsaleigulög, almennar íbúðir og húsnæðisbætur. Frumvarp um húsnæðissamvinnufélög hefur þegar verið samþykkt.

Við hljótum að geta verið sammála um að þetta er einstakur árangur á aðeins þremur árum. Hagvöxtur og stöðugleiki kemur öllum til góða. Í ljósi þess tel ég að það hafi verið vanhugsað að samþykkja kosningar nú í haust. Ég tel að hagsmunum Íslands sé best borgið með því að leyfa núverandi ríkisstjórn að klára kjörtímabilið, að hún fái að halda áfram með aðkallandi verkefni — og helst næsta, já — og leggja frekari grunn að áframhaldandi framförum hér á landi og uppbyggingu í landinu öllu.“

Silja Dögg Gunnarsdóttir í störfum þingsins 24. maí 2016.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress