Vaxandi tölur

News

Þar kemur fram greinileg aukning á tilkynningum til yfirvalda á milli áranna eða 8%. Tilkynningarnar vörðuðu 4.880 börn árið 2013 og voru þar drengir í meirihluta tilfella. Þá fjölgar tilkynningum í Reykjavík um 12% og á landsbyggðinni um 10%, en fækkar aðeins í nágrenni við Reykjavík. Mál 69% barna sem tilkynnt var um á árinu 2013 fóru í könnun eða voru opin barnaverndarmál. Þetta hlutfall hefur farið vaxandi á síðustu árum, en t.d. var það 60% árið 2011.

Það þarf að líta það alvarlegum augum að ekki sé vitað hvort þessi aukning stafi nákvæmlega af meira svigrúmi barnaverndarnefndar til þess að kanna mál og/eða hvort málin séu nú alvarlegri en fyrr, sér í lagi þegar um er að ræða eins alvarlegan málaflokk og raun er. Samvinna þings og þjóða Á Norðurlöndum hefur Ísland vakið athygli fyrir vinnu sína í félags- og barnaverndarþjónustu, árangur þeirra verkefna hefur sýnt okkur fram á hve mikilvægt er að vinna forvarnarstarf og grípa strax í taumana þegar að eitthvað fer miður. Margir fagaðilar hafa komið til landsins til að kynna sér þá vinnu. Þarna er gott dæmi um styrkleika eins lands á sérstöku sviði sem vel er hægt að miða áfram til annarra landa og þau geti nýtt sér í sinni vinnu. Þingmenn eiga stóran þátt í velferð barna, það er okkar hlutverk að búa til umhverfi þar sem forvarnir, inngrip sem fyrst og góð úrræði eigi sem greiðasta leið. Í skýrslu Barnaverndarstofu kemur fram að börnum á Stuðlum og öðrum meðferðarheimilum hefur fækkað í kjölfar aukinnar meðferðar barna í nærumhverfi þeirra. Hluti af skyldu okkar alþingismanna er að vernd barna nái virkilega til þeirra og utan um þau en endi ekki við þröskuld heimilanna.  Jóhanna María Sigmundsdóttir Greinin birtist í Morgunblaðinu 27. september 2014

 

PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress