Framhaldsþing: Tvöfalt kjördæmaþing
Date
Time
12:00-13:00
Location
Víkingsheimilinu, Safamýri
Municipality
Reykjavik
Stjórn Kjördæmasambands framsóknarmanna í Reykjavík boðar til tvöfalds kjördæmaþings (framhald) laugardaginn 7. febrúar kl. 12:00 í Víkingsheimilinu, Safamýri.
Stjórn Kjördæmasambands framsóknarmanna í Reykjavík boðar til tvöfalds kjördæmaþings (framhald) laugardaginn 7. febrúar kl. 12:00 í Víkingsheimilinu, Safamýri.
Drög að dagskrá
1. Kosning starfsmanna þingsins.
2. Tillaga að framboðslista Framsóknar í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar 16. maí 2026.
3. Önnur mál.
Kjörstjórn hefur þegar auglýst eftir framboðum á framboðslista Framsóknar í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar 16. maí 2026. Tekið er á móti framboðum og tilnefningum á netfanginu reykjavik@framsokn.is. Áhugasamir eru hvattir til að gefa kost á sér. Sjá nánar https://framsokn.is/.../auglyst-eftir-frambodum-a-lista.../
Val fulltrúa fór fram á aðal- eða félagsfundi aðildarfélaga að viðhafðri hlutfallskosningu.
Þá eiga allir félagsmenn Framsóknarflokksins í kjördæmunum rétt á að sitja kjördæmaþing með málfrelsi og tillögurétt.
Að þinginu loknu hefst sveitarstjórnarráðstefna Framsóknar á höfuðborgarsvæðinu.
Hlökkum til að sjá sem flest!



