Ályktun LFK: Jafnrétti er ekki einkamál annars kynsins

News

Framkvæmdastjórn Landssambands Framsóknarkvenna (LFK) fagnar tillögu formanna stjórnmálaflokkanna um jafnréttissjóð í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að m.a. konur fengu kosningarétt.

Þrátt fyrir að vera efst á lista Alþjóðaefnahagsráðsins í jafnrétti kynjanna er enn nokkuð í land að fullu jafnrétti sé náð á Íslandi. Afar jákvætt er að vinna eigi sérstaklega í því að ná enn lengra en sjóðinum er ætlað að styrkja verkefni til eflingar jafnréttis innanlands sem utan.

Mikilvægt er að styðja við konur í þeim löndum þar sem þær njóta ekki lagalegra réttinda á við karlmenn.

Í 52 ríkjum heims er ekki skilyrt í lögum að kynin njóti sömu réttinda. 26 ríki í heiminum í dag mismuna konum samkvæmt lögum um erfðarétt þar í landi. Efnahagslegt frelsi er grunnurinn að sjálfstæði kvenna en án þess eru þær dæmdar í fátækt og að vera háðar karlmönnum. Ísland á að vera fyrirmynd og í forystu í þessum mikilvæga málaflokki.

Jafnrétti er ekki einkamál annars kynsins og fagnar LFK áherslum UN Women um að auka þátttöku og skilning karla og drengja á mikilvægi þeirra í baráttu fyrir jafnari stöðu kynjanna.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress