Halla Hrund kallar eftir framtíðarsýn um þjóðlendur

News

Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknar, spurði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi mánudaginn 23. nóvember hvort ríkisstjórnin hygðist móta nýja stefnu um vernd, nýtingu og ráðstöfun þjóðlendna.

Land er ein verðmætasta auðlindin

„Land er ein verðmætasta auðlind hverrar þjóðar,“ sagði Halla Hrund í upphafi máls síns. Hún benti á að þjóðlendur væru um 40% af Íslandi, svæði á stærð við Danmörku, og að óbyggðanefnd hefði nú að mestu lokið við að ákvarða mörk þeirra. Því væru tímamót og spurningin nú hvernig þjóðin ætlaði að halda utan um þetta land. Hún nefndi vaxandi nýtingu: „Ferðaþjónustan hefur byggst upp í Kerlingafjöllum, nú í Þjórsárdal“, auk orku- og efnisvinnsluverkefna.

Halla Hrund lagði þrjár spurningar fyrir ráðherra: hvort ný stefna yrði mótuð til skemmri og lengri tíma, hvort gildandi umgjörð um samþykki fyrir nýtingu lands innan þjóðlendna væri fullnægjandi, og „Hvaða sjónarmið um gildandi endurgjald fyrir nýtingu er við hæfi“ svo að þjóðin fengi eðlilegan ábata. „Höfum við framtíðarsýn í þessum málum?“ spurði hún.

Forsætisráðherra tók undir mikilvægið

Kristrún Frostadóttir sagði vinnu óbyggðanefndar hafa verið gríðarlega mikilvæga og tók undir að miklu skipti hvernig ákvarðanir um verkefni á þessum svæðum væru teknar. Hún sagði ákveðna verkferla þegar til staðar, m.a. innan forsætisráðuneytisins, en að gera mætti betur.

Ný staða kallar á nýja umgjörð

Í seinni ræðu sinni benti Halla Hrund á að áður hefði ríkið oft samið við sjálft sig, til dæmis í orkusamningum við Landsvirkjun, „en nú er miklu meiri ásókn frá miklu fjölbreyttari aðilum.“ Mikilvægt væri að umgjörðin fylgdi tímanum og að ábati þjóðarinnar af verkefnunum yxi með auknu verðmæti landsins, ekki aðeins miðað við stöðuna í dag. „Ég hvet forsætisráðherra til að skoða það sérstaklega,“ sagði hún og spurði jafnframt hvort ráðherra styddi vinnu við að takmarka jarðakaup erlendra aðila og að frumvarp þess efnis kæmi fram á þessu þingi fremur en því næsta.

Forsætisráðherra sagði fulla ástæðu til frekari vinnu og fagnaði umræðunni. Hún kvaðst styðja frumvarp um landnotkun sem hún skildi að væri í undirbúningi, en sagðist ekki geta lofað neinni tímasetningu.


Óundirbúnu fyrirspurnina má sjá hér.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress