Er tækninni um að kenna?
Branches

Gamalt kínverskt spakmæli segir ef þú hugsar eitt ár fram í tímann, sáðu hrísgrjónum. Ef þú hugsar tíu ár fram í tímann, gróðursettu tré. Ef þú hugsar hundrað ár fram í tímann, menntaðu börn. Þessi orð minna okkur á að menntun er ein mikilvægasta fjárfesting sem samfélag getur ráðist í. Árangurinn kemur ekki alltaf strax í ljós. Hann birtist í tækifærum barnanna okkar, í þekkingu þeirra og í samfélaginu sem þau munu byggja.
Við vitum ekki hvaða störfum börnin okkar munu gegna eða hvernig tæknin mun breyta þeim. Við vitum þó að þau þurfa að geta lesið sér til gagns, skilið og beitt stærðfræði, hugsað gagnrýnið og skapandi og tileinkað sér nýja þekkingu. Námsumhverfið þarf að styðja við þessa færni og búa þau undir að takast á við breytingar. Þar hefur nýsköpun í skólakerfinu mikilvægu hlutverki að gegna, þar með talin menntatækni.
Er menntatækni sökudólgurinn?
Slakur árangur í PISA kallar á að við skoðum nám og kennslu í heild. Í umræðunni hefur tæknin stundum verið gerð að sökudólgi en það væri of mikil einföldun að láta þar við sitja. Við þurfum að skoða hvernig hún er notuð, hvaða námsgögn standa til boða og hvaða stuðning kennarar fá til að nýta þau. Um leið eigum við að horfa til þeirra tækifæra sem tæknin skapar til að bæta kennslu og námsárangur.
Niðurstöður PISA 2022 sýna jákvæða fylgni milli kennslufræðilegrar notkunar stafrænna tækja og árangurs í PISA. Nemendur sem notuðu stafræn tæki til náms í allt að eina klukkustund á dag voru að meðaltali 14 stigum hærri í stærðfræði en þeir sem notuðu þau ekkert, að teknu tilliti til félagslegs og efnahagslegs bakgrunns nemenda og skóla. Niðurstöðurnar gefa okkur því tilefni til að skoða hvar og hvernig tæknin getur stutt við betri námsárangur.
Hér er vert að taka fram að það er munur á því að nemandi fletti í gegnum samfélagsmiðla í kennslustund og að hann noti stafrænt námstæki markvisst til að þjálfa hæfni. Með símafríi í grunnskólum hefur verið stigið mikilvægt skref til að draga úr truflun og skapa betri aðstæður til náms og félagslegra samskipta. Stafræn tæki í eigu skólanna eru þó áfram notuð í kennslu.
Tæknibúnaður eins og tölvur er verkfæri, rétt eins og vasareiknir eða blýantur. Börn þurfa að læra hvernig verkfærin virka, hvenær þau gagnast og hvernig á að beita þeim. Nemandi sem notar vasareikni þarf áfram að skilja reikniaðferðina og geta horft gagnrýnt á hana. Notkun vasareiknis, líkt og tölvu, á heldur ekki alltaf við og kennari þarf að meta hvenær er á að nota tækið og hvenær ekki.
Bækur og menntatækni eru ekki andstæðingar
Við þurfum að horfa heildstætt á námsgögn. Innleiðing menntatækni þýðir ekki að við leggjum bókunum. Við þurfum áfram að fjárfesta í fjölbreyttum bókakosti, efla lestur og skapa börnum tækifæri til að sökkva sér niður í texta. Þess vegna hefur meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur nú þegar aukið fjármagn til bókakaupa á skólabókasöfnum Reykjavíkur. Bókmenntirnar detta þannig ekki út úr kennslunni þótt tæknin komi inn. Tæknin getur hins vegar verið verkfæri til að vinna með texta, kanna orð og hugtök og miðla eigin túlkun. Bókin, lesturinn og samtalið um verkið eiga því áfram sinn stað. Eitt þarf ekki að útiloka annað.
Sumar menntatæknilausnir sameina jafnframt prentaðar námsbækur og stafrænt umhverfi. Þannig getur kennari getur lagt inn nýtt efni með hjálp kennslubókar og nemendur svo nýtt menntatæknilausnir til að þjálfa hæfni sína frekar í því sem þeir hafa lært. Í flestum skólum landsins er til dæmis íslenska menntatæknilausnin Evolytes notuð á yngsta stigi til að æfa stærðfræði. Lausnin er dæmi um hvernig nýta má tækni til að styðja við kennslu og vekja áhuga barna á stærðfræði. Þar fá börnin verkefni við hæfi í umhverfi sem þeim finnst skemmtilegt og hentar þeirra getustigi. Þannig geta þau öðlast jákvæðri reynslu af stærðfræðinámi og byggt upp sjálfstraust í faginu. Í rannsókn á notkun Evolytes leystu nemendur með námsörðugleika allt að tólf sinnum fleiri verkefni í gegnum menntatæknilausnina samanborið við það sem þau reiknuðu í skólanum.
Í gegnum slíkar menntatæknilausnir getur kennarinn meðal annars fengið upplýsingar í rauntíma um hvernig nemendum gengur, séð hvar þeir gera ítrekað mistök og hvar þörf er á frekari útskýringum. Þannig getur tæknin hjálpað kennaranum að bregðast fyrr við, veita markvissari stuðning og velja verkefni við hæfi. Faglegt mat kennarans ræður áfram för en upplýsingarnar úr tæknilausninni geta stutt við kennslu og hjálpað nemandanum að ná betri árangri.
Besta leiðin til að hræðast ekki framtíðina er að undirbúa hana
Menntatæknin bætir við leiðum til að kenna og þjálfa færni en það er mikilvægt er að setja skýr, samræmd viðmið um þá notkun, þannig að hún hafi kennslufræðilegan tilgang og styðji við nám barnanna. Það skiptir máli hvaða tækni við notum í skólum, í hvaða tilgangi og fyrir hvaða aldurshópa. Með skýrum viðmiðum um notkun menntatækni getum við einnig stutt kennara í að nýta hana þar sem hún gagnast náminu og dregið úr ónámstengdri notkun tækja á skólatíma.
Okkar hlutverk er að mæta tækniframförum með opnum huga en jafnframt vera með skýran ramma um notkun tækninnar og skapa kennurum aðstæður til að nýta hana með fagleg sjónarmið að baki. Við vitum ekki hvernig framtíðin verður, en við getum búið börnunum aðstæður til að öðlast þá þekkingu og færni sem þau þurfa til að móta hana.
Magnea Gná Jóhannsdóttir
Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Framsóknar og fulltrúi í skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar.



