Framboðslisti Framsóknar í Reykjavík samþykktur

Framboðslisti Framsóknar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar var samþykktur í dag í Víkingsheimilinu í Safamýri á tvöföldu kjördæmaþingi Kjördæmasambands Framsóknar í Reykjavík.

Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi, skipar efsta sæti á lista flokksins. Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi, skipar annað sæti listans. Þorvaldur Daníelsson, fyrsti varaborgarfulltrúi og framkvæmdastjóri Hjólakrafts, er í þriðja sæti, Halldór Bachmann, kynningarstjóri, er í fjórða sæti og Andrea Edda Guðlaugsdóttir, hagfræðinemi og stúdentaráðsliði, í því fimmta.

Einar Þorsteinsson oddviti segist gríðarlega stoltur af öflugum lista. “Við í Framsókn mætum til leiks með öflugan lista, frábæra blöndu af fólki af öllum aldri og úr öllum hverfum. Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt með því að fá að leiða listann og fagna nýju fólki sem ætlar að taka þátt í baráttunni. Ég hlakka til þess að hefja kröftuga kosningabaráttu og svara kalli kjósenda um róttækar breytingar á stefnu Reykjavíkurborgar.”

Listi Framsóknar í Reykjavík:

1 Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi
2 Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi
3 Þorvaldur Daníelsson, varaborgarfulltrúi og framkvæmdastjóri Hjólakrafts
4 Halldór Bachmann, kynningarstjóri
5 Andrea Edda Guðlaugsdóttir, hagfræðinemi og stúdentaráðsliði
6 Þórdís Jóna Jakobsdóttir, fíkniráðgjafi
7 Ína Holoyad, úkraínskumælandi brúarsmiður hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
8 Guðmundur Ingi Þorvaldsson, leikari
9 Ásrún Kristjánsdóttir, myndlistarmaður og hönnuður
10 Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri
11 Kristjana Þórarinsdóttir, sálfræðingur
12 Dagbjört Höskuldsdóttir, formaður Sambands eldri Framsóknarmanna og fyrrum kaupmaður
13 Jón Finnbogason, ráðgjafi
14 Þórdís Arna Bjarkarsdóttir, læknir
15 Fanný Gunnarsdóttir, náms- og starfsráðgjafi og kennari
16 Haraldur Þorvarðarson, kennari og handboltaþjálfari
17 Ragnhildur Helga Ragnarsdóttir, tæknistjóri
18 Hörður Ragnarsson, hugbúnaðarsérfræðingur
19 Sæþór Már Hinriksson, tónlistarmaður og háskólanemi
20 Ásta Björg Björgvinsdóttir, kennari og tónlistarkona
21 Gísli J Jónatansson, fyrrverandi kaupfélagsstjóri
22 Dröfn Skorradóttir, móttökuritari
23 Ágúst Guðjónsson, lögfræðingur
24 Hafsteinn Gunnarsson, byggingafræðingur og forstöðumaður
25 Björg Ósk Gunnarsdóttir, lögfræðingur
26 Björn Ívar Björnsson, fjármálastjóri og hagfræðingur
27 Gyða Björg Olgeirsdóttir, aðstoðarmaður framkvæmdastjóra
28 Arnar Már Davíðsson, framleiðandi
29 Linda Björk Hávarðardóttir, aðstoðarforstöðukona á frístundaheimili
30 Arnþór Árni Logason, tölvunarfræðingur
31 Bragi Ingólfsson, efnafræðingur
32 Steinþór Ólafur Guðrúnarson, atvinnubílstjóri
33 Olga Hrönn Olgeirsdóttir, deildarstjóri í grunnskóla
34 Breki Halldórsson Bachmann, námsmaður og stuðningsfulltrúi í grunnskóla
35 Inga Þyrí Kjartansdóttir, formaður eldri borgara í Fossvogi
36 Ólafur Ólafsson, sérfræðingur
37 Jóhann Karl Sigurðsson, eldri borgari
38 Ívar Orri Aronsson, íþróttastjóri
39 Milla Ósk Magnúsdóttir, kvikmynda- og sjónvarpsþáttaframleiðandi
40 Lárus Sigurður Lárusson, söngvari og lögmaður
41 Hulda Finnlaugsdóttir, fyrrv. sérkennari
42 Aðalsteinn Haukur Sverrisson, framkvæmdastjóri og fráfarandi borgarfulltrúi
43 Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við HÍ og fráfarandi borgarfulltrúi
44 Níels Árni Lund, fyrrv. skrifstofustjóri
45 Hjálmar Árnason, fyrrv. þingmaður og skólameistari
46 Sigrún Magnusdóttir, fyrrv. borgarfulltrúi og ráðherra