
Yngsti frambjóðandinn á listanum okkar er hún Bríet Rose en þrátt fyrir ungan aldur er hún hokin af reynslu með 140 KSÍ leiki skráða og núll rauð spjöld (annað en sumir á listanum). Svo heldur hún líka með United, ef þið voruð farin að hafa áhyggjur af því að Púlarar væru að taka listann yfir!
Nafn: Bríet Rose Raysdóttir
Aldur: 20
Starf: leikskólastarfsmaður
Fjölskylduhagir: Ray og Gerður Björg eru foreldrar mínir og á tvö systkini, Jónas og Alexandra
Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Grindavík í einn dag, hvað myndir þú gera?
Ég myndi halda lokahóf knattspyrnudeildar Grindavíkur jafn stórt og það var alltaf, með geggjuðu veðri allan daginn og allt samfélagið mætt. Svo myndi kvöldið rúlla áfram í eftirpartý eftir eftirpartý þar sem allir sama á hvaða aldri fara saman og syngja og dansa fram á nóttu.
Hvar sérð þú Grindavík eftir fjögur ár?
Fullt af lífi, góðri stemningu og samheldni. Fullt af spennandi tækifærum fyrir alla.
Topp fimm:
Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi: Villi Árna
Uppáhalds lið í enska: Manchester United
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Love island
Uppáhalds hljómsveit: Hubbabubba
Uppáhalds staður í Grindavík: Verð að segja klefinn, klefa stemningin með liðinu


