
Heiðurssætið á listanum skipar Guðmundur Grétar Karlsson. Gummi er eldri en tvævetur í þessum bransa og þekkir sveitarstjórnarstarfið inn og út enda fyrrum formaður bæði flokksins okkar og fræðslunefndar til margra ára.
Hér er líka kominn algjörlega einstakur frambjóðandi en hann heldur með Arsenal í enska!
Nafn: Guðmundur Grétar Karlsson
Aldur: 45 ára
Starf: Framhaldskólakennari og AMPM nemi við HR
Fjölskylduhagir: Giftur Mörtu Karlsdóttur, Keflvíkingi, sem er reyndar orðin miklu meiri Grindvíkingur en ég
Við eigum saman þrjár dætur: Sigrúnu Maríu 15 ára, Grétu Rós 9 ára og Hrafnhildi Lilju 5 ára.
Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Grindavík í einn dag, hvað myndir þú gera?
Ég myndi friðlýsa gamla bæinn og setja allan peninginn í að veita honum þann sess sem hann á skilið í bæjarfélaginu. Þarna byrjaði Grindavík.
Hvar sérð þú Grindavík eftir fjögur ár?
Blómlegan bæ með fullt af tækifærum. Ég held að margir sjái núna hvað við vorum að gera fullt af hlutum vel sem samfélag í víðum skilningi. Við búum að ríkri reynslu og þekkingu sem við eigum að nýta okkur í mótun framtíðarinnar.
Topp fimm:
Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi: Samkennari minn hann Magnús Einþór Áskelsson. Hann kann að koma á óvart og gera lífið skemmtilegra. Hann fékk einu sinni þá hugmynd að koma eins klæddur og ég í vinnuna á öskudegi. Fékk Jóa félaga okkar í lið með sér og að sjálfsögðu Mörtu til að koma mér í réttu fötin þann daginn
Uppáhalds lið í enska: Arsenal síðan 1989
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Ætti örugglega að segja Breaking Bad en Fargo nær einhvern veginn ótrúlegu taumhaldi á manni.
Uppáhalds hljómsveit: Depeche Mode. Mæli með Depeche Mode bar í Tallin ef þið eigið leið þar um.
Uppáhalds staður í Grindavík: Gamli bærinn, Bótin, Rásin, sjórinn, hraunið, túnin og dýrin. Sannkölluð paradís sem við eigum þar.


