
Í 7. sætinu er hann Jón Fannar Sigurðsson. Þrátt fyrir að vera næst yngsti frambjóðandinn á listanum þá er Creed uppáhalds hljómsveitin hans, svo að við getum ekki útilokað að hann sé í raun miðaldra maður í dulargervi.
Nafn: Jón Fannar
Aldur: 21 árs
Starf: Stuðningsfulltrúi
Fjölskylduhagir: Foreldrar mínir eru Sigurður Daníel og Herdís Gunnlaugsdóttir og ég á 3 systur, Lilju Rún, Láru og Heiðdísi
Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Grindavík í einn dag, hvað myndir þú gera?
Ég myndi halda Sjóarann síkáta og bjóða uppá alvöru veislu sem myndi enda á góðu balli í íþróttahúsinu.
Hvar sérð þú Grindavík eftir fjögur ár?
Ég sé skólahald og íþróttastarf komið fullt af stað og fallegan bæ með helling af tækifærum.
Topp fimm:
Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi: Sigmundur Davíð
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Breaking bad
Uppáhalds hljómsveit: Creed
Uppáhalds staður í Grindavík: Verð að segja heima á Baðsvöllunum eða íþróttamiðstöðin


