Kynning á frambjóðanda: Siggeir F. Ævarsson

The people

Í 11. sætinu er sjálfur formaður Samfylkingarinnar í Grindavík, Siggeir F. Ævarsson. Hann hefur megna óbeit á stjörnuspeki og segist gjarnan vera steinbítur eða rabbabari þegar hann er spurður í hvaða stjörnumerki hann sé.

Nafn: Siggeir F. Ævarsson
Aldur: 41 árs
Starf: Sérfræðingur á fræðslu- og upplýsingasviði ASÍ.
Fjölskylduhagir: Giftur Soffíu Snædísi Sveinsdóttur Ólafsfirðingi sem er reyndar orðin jafnvel harðari Grindvíkingur en ég síðustu ár. Saman eigum við tvær dætur, Emilíu Snærós og Þórgunni Júlíu. Líka tvo ketti og einn hund.

Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Grindavík í einn dag, hvað myndir þú gera?
Auðveld spurning. Setja upp hoppubelg við hvert einasta hús í bænum.

Hvar sérð þú Grindavík eftir fjögur ár?
Í blóma. Viðspyrnan er þegar hafin. Fulla ferð áfram og ekkert stopp eftir 16. maí.

Topp fimm:
Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi: Fáir sem búa yfir jafn miklum þokka og minn fyrrum samkennari Willum Þór.
Uppáhalds lið í enska: United. Það hefur þó vissulega verið ákveðin eyðimerkurganga síðustu ár.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Parks & Rec. Ron Swanson er mín fyrirmynd þegar kemur að opinberri stjórnsýslu.
Uppáhalds hljómsveit: Queen. Annar er topp fimm listinn, í engri sérstakri röð eftir fyrsta sætið: Queen, Pantera, Black Sabbath, Slayer og Clutch.
Uppáhalds staður í Grindavík: Hólavellir 3, þá sérstaklega pallurinn og potturinn í grindvísku logni.