Kynning á frambjóðanda: Valgerður Ágústsdóttir

The people

Í sjötta sætinu hjá okkur er hún Valgerður Ágústsdóttir. Valgerður tók sér lengstan tíma allra frambjóðenda að svara spurningalistanum en hún er líka kona með plan, eða réttara sagt plön í fleirtölu. Við þurfum fólk með stórar og öflugar hugmyndir í bæjarstjórn Grindavíkur og þar kemur Valgerður gríðarlega sterk inn.

Nafn: Valgerður Ágústsdóttir.
Aldur: 39 ára.
Starf: Ég er menntaður félagsráðgjafi og hef starfað sem slíkur síðustu ár. Ég sit í stjórn Járngerðar, hagsmunafélags Grindvíkinga, og hef sinnt þar margvíslegum verkefnum tengdum baráttu fyrir endurreisn Grindavíkur.
Fjölskylduhagir: Ég er gift Steinþóri Júlíussyni og eigum við saman þrjú börn þau Ágúst Þór, Steinunni Maríu og Steinþór Júlíus. Við eigum líka hundinn Mosa.

Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Grindavík í einn dag, hvað myndir þú gera?
Ég myndi afhenda öllum lyklana af húsunum sínum! Svo myndi ég opna heilsugæsluna og tryggja viðveru sjúkrabíls í bænum. Ég myndi hafa leikskóla frá 12 mánaða aldri og tryggja að öll börn búsett í Grindavík hafi tækifæri til að stunda íþróttir og tómstundir. Ég myndi einnig leggja áherslu á að hugsað sé einstaklega vel um gamla fólkið okkar. Ekki má gleyma andlegri heilsu Grindvíkinga og til að efla hana myndi ég m.a. koma af stað jafningjahópum þar sem lögð yrði áhersla á jafningjastuðning undir handleiðslu fagfólks.

Hvar sérð þú Grindavík eftir fjögur ár?
Bærinn verður fallegur ásýndar og iðandi af mannlífi. Innviðir bæjarins verða komnir í toppstand frá öllum hliðum séð. Bæjarbragurinn verður fullkominn blanda af heimamönnum og ferðamönnum, þar sem heimamenn munu segja frá sinni einstöku sögu af einlægni og stolti. Grindvíkingar hafa lært hvað það er sem raunverulega skiptir máli og því mun ríkja samheldni og hæglátt en einstaklega skemmtilegt líf í Grindavík.

Topp fimm:

Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi: Framsóknarmaðurinn Willum Þór
Uppáhalds lið í enska: Manchester United
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Ølhunden Berit er skemmtilegasti þátturinn sem ég hef horft á nýlega, mæli með.
Uppáhalds hljómsveit: Þær eru svo margar sem ég elska en akkúrat núna hlusta ég mest á Olivia Dean.
Uppáhalds staður í Grindavík: Það er erfitt að gera upp á milli en topp þrír eru pallurinn heima, ströndin á Hópsnesinu og lautirnar í hrauninu í Hópshverfinu.