Suðurnesjabær stendur á einstökum stað þegar kemur að atvinnuuppbyggingu. Með alþjóðaflugvöll í okkar sveitarfélagi og öfluga hafnaraðstöðu höfum við forskot sem fá sveitarfélög geta státað af. Þetta skapar traustan grunn fyrir fjölbreytt atvinnulíf, nýsköpun og verðmætasköpun sem tryggir lífsgæði íbúa til framtíðar. En þessi tækifæri þurfum við að nýta betur.

Sterkt atvinnulíf er undirstaða velferðar. Það skapar störf, eykur tekjur sveitarfélagsins og gerir okkur kleift að byggja upp góða þjónustu, öflugt skólastarf og lifandi samfélag. Þess vegna er mikilvægt að horfa fram á veginn og nýta þau tækifæri sem staðsetning okkar býður upp á.

Við Framsóknarmenn viljum tryggja að í Suðurnesjabæ sé ávallt nægt framboð lóða fyrir atvinnu- og iðnaðarstarfsemi og að úthlutunarferli sé einfalt, hratt og gagnsætt. Fyrirtæki eiga að geta treyst því að hér sé skilningur á þörfum þeirra og vilji til samstarfs.

Jafnframt er nauðsynlegt að móta skýra og metnaðarfulla atvinnustefnu sem nýtir styrkleika svæðisins til fulls. Nálægðin við flugvöll og hafnarsvæði opnar fjölmörg tækifæri – allt frá flugtengdri starfsemi til sjávarútvegs, flutninga, þjónustu og nýsköpunar.

Við viljum laða að ný fyrirtæki og fjárfestingu með markvissri kynningu á svæðinu og öflugu samstarfi við atvinnulíf og opinbera aðila. Með því getum við skapað fleiri störf og aukið fjölbreytni í atvinnulífinu. Hafnarsvæðið gegnir lykilhlutverki í framtíðaruppbyggingu og mikilvægt er að efla það markvisst. Þar liggja tækifæri til frekari þróunar í tengslum við útflutning, þjónustu og iðnað. Einnig viljum við styrkja tengsl við flugrekstur og laða að flugtengda starfsemi í nánu samstarfi við rekstraraðila. Þar er um að ræða mikilvægt sóknarfæri sem getur haft veruleg áhrif á atvinnu og tekjur á svæðinu.

Að lokum er grundvallaratriði að bæta þjónustu við fyrirtæki. Skilvirk stjórnsýsla er lykillinn og jákvætt viðmót skiptir sköpum þegar fyrirtæki velja sér stað til uppbyggingar.

Með skýrri sýn, markvissum aðgerðum og öflugu samstarfi getum við tryggt að Suðurnesjabær verði öflugt atvinnusvæði þar sem verðmætasköpun og lífsgæði fara saman. Með atvinnu er hægt að skapa hagvöxt sem leiðir af sér öfluga velferð.

Höfundur er oddviti Framsóknar og óháðra í Suðurnesjabæ.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 15. apríl 2026