Yfirlýsing þingflokks Framsóknar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu
Notifications

Við í Framsókn treystum þjóðinni til að taka rétta ákvörðun í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Við höfum gert alvarlegar athugasemdir varðandi þingmálið:
Málið er illa undirbúið
Það fór ekki í samráðsgátt
Samningsmarkmið eru óljós
Umsagnaraðilar fengu ekki nægan tíma til að fara yfir umsagnir sínar
Nefndin fékk takmarkaðan tíma til að ræða málið
Það hafa ekki öll gögn í málinu komið fram - þrátt fyrir áskorun okkar í Framsókn að öll gögn séu uppi á borðum og algert gagnsæi ríki í málinu til að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun.
Framsókn telur að hagsmunum Íslands er best borgið utan Evrópusambandsins.
Þessum sjónarmiðum hafa þingmenn Framsóknar komið skýrt á framfæri síðustu daga á Alþingi og að óbreyttu höfum við lokið máli okkar.
Málið fer nú til þjóðarinnar og við treystum henni til að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknar í umræðum um þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið.



